Fjórtán nemendur komast í úrslitakeppnina
Úrslitakeppni Stærðfræðikeppni Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, Menntaskólans á Tröllaskaga og 9. bekkinga á Norðurlandi vestra verður haldin í FNV föstudaginn 20. apríl kl. 14:00 en 14 nemendur komast í keppnina að þessu sinni. Forkeppnin var haldin þann 23. mars sl. og liggja nú úrslitin fyrir.
Á heimasíðu FNV kemur fram að vegleg verðlaun séu í boði sem gefin eru af stofnunum, fyrirtækjum og sveitarfélögum, en keppnin er samvinnuverkefni skólanna og þessara aðila. Megin tilgangur keppninnar er að auka áhuga grunnskólanema á stærðfræði og hvetja þá til dáða í þeim efnum.
Eftirtaldir keppendur mæta til leiks í úrslitakeppnina:
| Anna Rós Bragadóttir | Grunnsk. Húnaþings vestra |
| Arnbjörg Hlín Áskelsdóttir | Grunnskóli Fjallabyggðar |
| Ásdís Birta Árnadóttir | Höfðaskóli |
| Benedikt Axel Ágústsson | Blönduskóli |
| Eydís Rachel Missen | Grunnskóli Fjallabyggðar |
| Guðlaug Rún Sigurjónsdóttir | Árskóli |
| Guðrún Dóra Sveinbjarnard | Blönduskóli |
| Hafdís Lára Halldórsdóttir | Varmahlíðarskóli |
| Hákon Ingi Stefánsson | Varmahlíðarskóli |
| Heiðrún Nína Axelsdóttir | Grunnsk. Húnaþings vestra |
| Ragna Vigdís Vésteinsdóttir | Varmahlíðarskóli |
| Rögnvaldur Tómas Steinsson | Árskóli |
| Sigmar Ingi Njálsson | Blönduskóli |
| Valdimar Daðason | Dalvíkurskóli |
