Framkvæmdir á Tyrfingsstöðum

Framkvæmdir á Tyrfingsstöðum. Mynd: Fornverkaskólinn.
Framkvæmdir á Tyrfingsstöðum. Mynd: Fornverkaskólinn.

Fornverkaskólinn, sem er samstarfsverkefni Byggðasafns Skagfirðinga, Tréiðnaðardeildar Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og Ferðamáladeildar Háskólans á Hólum, er enn að starfa á Tyrfingsstöðum á Kjalka þótt langt sé liðið á árið. Þar standa nú yfir framkvæmdir en nú á að ljúka við suðurþil baðstofunnar og leggja gólf í hana.

Samkvæmt Fésbókarsíðu Fornverkaskólans er verkið unnið af Helga Sigurðssyni hjá Fornverki ehf. með aðstoð verkefnisstjóra Fornverkaskólans og bændum á Tyrfingsstöðum eftir þörfum. Verkefnið mun vera styrkt af Húsafriðunarsjóði í gegnum Byggðasafn Skagfirðinga.

Fleiri fréttir