Gangnamaður í vandræðum
Björgunarsveitir úr Skagafirði og Húnavatnssýslu leituðu gangnamanns sem saknað hafði verið við Hrossafell í gær. Maðurinn var við leitir þegar hann missti frá sér hestinn þannig að hann þurfti að fara á eftir honum.
Um klukkan 10 í gærmorgun náðist samband við manninn, hafði hann þá náð hesti sínum og var sagt að koma í Kambadal og hitta félaga sína. Síðan spurðist ekkert til mannsins fyrr en um klukkan 10 í gærkvöldi er hann kom að bænum Ketu á norðvestanverðum Skaga ómeiddur, en kaldur og þrekaður.
Um 50 björgunarsveitamenn tóku þátt í leitinni ásamt þyrlu Landhelgisgæslunnar en leitarskilyrði voru slæm, þokusuddi og rigning.