Golfmót á mánudaginn hjá GSS

Opið Texas scramble mót verður haldið á Hlíðarendavelli á Sauðárkróki mánudaginn 24.maí,  Annan í Hvítasunnu. Mótið hefst klukkan 10:00 og er skráning á www.golf.is

 

Þetta er fyrsta mótið hjá GSS í ár sem fagnar nú 40 ára afmæli á árinu og verður haldið sérstakt afmælismót í tilefni af því 3. júlí. Að sögn Peturs Friðjónssonar formanns GSS kemur völlurinn vel undan vetri. -Völlurinn hefur aldrei verið betri!

Fleiri fréttir