Hard Wok styrkir Völu Mist og fjölskyldu
Í tilefni af sex ára afmæli veitingastaðarins Hard Wok Cafe á Sauðárkróki, ætla eigendur hans að að vera með styrktardag fyrir Lilju Gunnlaugsdóttur og Val Valsson miðvikudaginn 5. apríl næstkomandi. Eins og margir vita eignuðust þau stúlku í byrjun árs sem hafði átt erfiðar síðustu vikur í móðurkviði svo nauðsynlegt reyndist að fara með hana til Svíþjóðar þar sem gera þurfti "opna hjartaaðgerð" á henni. Búið er að nefna stúlkuna Völu Mist.
„Eitt af því sem við Valur erum búin að læra í öllu þessu ferli er að þiggja aðstoð. Þetta hljómar kannski einkennilega en við erum bæði alveg agalega sjálfstæð og erum vön að gera hlutina sjálf. En það að þiggja aðstoð er rosalega gefandi, því tilfinningarnar sem maður fyllist af eru svo góðar, ekki annað hægt þegar við finnum hve vel fólk hugsar til okkar og vill styðja þétt við bakið á okkur. Þetta er eitthvað sem við munum aldrei gleyma.
Af litlu hetjunni okkar, sem við erum búin að nefna Vala Mist, er það að frétta að við erum komin af gjörgæslunni á barnahjartadeildina þar sem við fáum að vera með henni á einkaherbergi. Það þarf að tappa mænuvökva daglega úr bráðabirgðadreninu og er hún ennþá á sýklalyfjum til að losna við sýkinguna, en það verður ekkert gert fyrr en hún er laus við hana. Bestu kveðjur frá Svíþjóð, Lilja og Valur,“ segir á styrktarsíðu Stúlku Valsdóttur.
Eins og áður segir ætlar Hard Wok Cafe að gefa Völu og fjölskyldu alla sölu miðvikudagsins 5. apríl næstkomandi en þá verður boðið upp á hamborgara með frönskum, kokteilsósu og gosi með ís í eftirrétt á kr. 2500 en sú upphæð mun renna óskipt til fjölskyldunnar.
„Við vonum að sem flestir mæti og fái sér hamborgara og leggi góðu málefni lið í leiðinni. Hægt verður að borða á staðnum eða taka með heim en gos og ís fylgja bara með mat í sal,“ segir á fésbókarsíðu Hard Wok Cafe.
Þeir sem ekki komast í borgarann en vilja styðja við fjölskylduna geta lagt inn á reikning:
0310-13-110012
Kt 161283-3129