Heimildamyndin Dóra – Ein af strákunum frumsýnd
Á morgun klukkan 15 verður heimildamyndin Dóra – Ein af strákunum frumsýnd í Króksbíó. Myndin segir frá liðlega fertugri húsmóður í Reykjavík sem gerist kokkur á grænlenskum verksmiðjutogara. Sýningartími er 53 mínútur og kostar miðinn 1.000 krónur en aðgangseyrir rennur óskiptur til Krabbameinsfélags Skagafjarðar. Framleiðandi myndarinnar er kvikmyndagerðarfyrirtækið Skottafilm á Sauðárkróki.
Handrit myndarinnar gerðu þau Árni Gunnarsson og Stefanía Thors og Árni leikstýrir jafnframt myndinni. Kvikmyndataka var í höndum Árni Gunnarssonar og Árna Rúnars Hrólfssonar en Stefanía Thors sá um handritið. Tónlistina gerðu Helgi Svavar Helgason og Þorsteinn Einarsson en um hljóðvinnsluna sá Friðjón Árnason. Grafíkina gerði Kontor Reykjavík.
Myndin verður einnig frumsýnd á Höfn í Hornafirði, þar sem aðalsöguhetja hennar er búsett, á sama tíma. Þar verður sýnt í Framhaldsskólanum í Austur-Skaftafellssýslu sem staðsettur er í Nýheimum.