Hestamanna hittingur í skugga hóstapestar
Það segir frá því á vefsíðum hestamannafélaganna í Skagafirði að þó ekki sé hægt að fara í skipulagðar hestaferðir eins og venja er á sumrum þá ætla hestamenn að koma saman og gleðjast hestalausir.
Eins og staðan er í dag er félagslíf hestamanna frekar dapurt sökum hestapestar. Lítið er um að hægt sé að fara í skipulagðar hestaferðir.
Hafa því ferðanefndir hestamannafélaganna Léttfeta, Stíganda og Svaða ákveðið að slá til grillveislu og léttrar kvöldskemmtunar í Melsgili að kveldi 26. júní nk.