Hross hrapaði til dauða
Veturgamalt tryppi drapst eftir að hafa hrapað niður fjallshlíð Staðaraxlar sl. sunnudag en hrossahópur sem var í hólfi frá bænum Vík hafði klifið upp á fjallið. Svo virðist sem styggð hafi komið að honum, sem var í lokuðu hólfi, líklega eftir sprengingar á þrettándanum.
Tóku þau á rás upp fjallið, hlupu niður hlið og sást til þeirra á Staðaröxl sl. sunnudag. Sjónarvottur segist hafa séð hrossin renna af stað niður Sandana svokölluðu, snarbratta hlíð og í miklu harðfenni. Þegar betur var að gáð lá eitt tryppið eftir í valnum og ljóst að það hafði hrapað til dauða.
Að sögn eigenda hrossanna var það bara hluti hrossastóðsins sem lagði upp í þetta glæfraleiðangur.