Hundur gólar jólalag - Myndband
Jólatónleikar Tónlistarskóla Skagafjarðar hafa farið fram víðs vegar um héraðið nú í desember. Fyrstu leikar hófust fimmtudaginn 8. desember í Félagsheimilinu Höfðaborg Hofsósi, á Hólum12. desember, í Miðgarði 13. desember og þeir síðustu í matsal í Árskóla í gær.
Tónlistarskólinn hefur aðsetur á Sauðárkróki en sinnir tónlistarkennslu í öllum Skagafirði og eru kennslustaðir fimm talsins. Samkvæmt heimasíðu skólans fara kennarar á milli kennslustaða eftir því sem þörf er á hverju sinni en skólinn hefur útibú á Hofsósi og Varmahlíð en fær aðstöðu í Grunnskólunum á Hólum og Sólgörðum.
Skólastjóranum Sveini er margt til lista lagt og í myndbandinu hér að neðan leikur hann undir með einum nemenda sínum sem gólar lítið jólalag.
Jóla dúettinn ... frábæri hahaha
Posted by Sólveig Austfjörð Bragadóttir on 2. desember 2016