Kalt á Norðurlandinu í morgun

Það var kalt á Norðurlandi vestra í morgun þegar fólk fór á stjá en samkvæmt veðurmælum Veðurstofunnar var -8,2°C á Sauðárkróki, -8 °C á Gauksmýri, -7 °C á Blönduósi og -4,2 °C á Reykjum í Hrútafirði snemma í morgun.

Spáin fyrir Strandir og Norðurland vestra næstu sólarhringinn gerir ráð fyrir norðaustan 5-10 m/s og stöku él. Hiti 0 til 4 stig að deginum, en víða vægt næturfrost.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á laugardag:
Norðlæg átt, 5-10 m/s og él N- og A-lands og allar syðst, en annars bjart með köflum. Frost 1 til 6 stig fyrir norðan, en hiti annars kringum frostmark.

Á sunnudag:
Norðlæg átt, 5-10 m/s og él á N-verðu landinu, en léttskýjað syðra. Frost 0 til 7 stig, minnst syðst.

Á mánudag:
Gengur í suðaustan 15-20 m/s með talsverðri slyddu, en síðar rigningu, en mun hægari og þurrt að kalla NA-til. Hlánar.

Á þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag:
Austlæg eða breytileg átt og vætusamt, en fremur milt veður.

Fleiri fréttir