Kennarar fá stuðningsyfirlýsingu frá nemendum sínum

Nemendur 10. bekkjar Árskóla á Sauðárkróki mættu í Ráðhús sveitarfélagsins í morgun og afhentu Herdísi Sæmundardóttur fræðslustjóra stuðningsyfirlýsingu þeirra við kennara og kjarabaráttu þeirra. Báðu þeir um að bréfinu yrði komið áfram til kjaranefndar sveitarfélaganna.
Það var Sylvía Rut Gunnarsdóttir sem fór fyrir nemendum og ávarpaði Herdísi og bað hana að koma bréfinu áfram. Las hún jafnframt upp úr bréfinu sem hljóðaði á þessa leið:
„Kæra kjaranefnd!
Við nemendur 10. bekkjar Árskóla höfum tekið þá ákvörðun að styðja kennarana okkar í kjarabaráttu þeirra. Starf kennara er mikilvægt í samfélaginu okkar því án þeirra væri engin menntun. Framtíð okkar byggist á góðri menntun. Án góðrar menntunar verður erfitt að uppfylla draumastörf okkar og framtíð. Okkur þykir leiðinlegt að horfa upp á
fólkið sem mótar framtíðina okkar þurfa að berjast svona hart fyrir því að sjá fyrir sér og fjölskyldum sínum. Við höfum safnað undirskriftum frá nemendum á unglingastigi Árskóla til að sýna fram á hversu margir styðja kennara landsins. Vin vonum að við sjáum mikilvægi þess að klára samningana sem fyrst.
Með vinsemd og virðingu, nemendur 10. bekk Árskóla.“
Herdís þakkaði fyrir sig og sagðist ætla að koma bréfinu áfram til sveitarstjóra og sveitarstjórnar. Sagðist hún taka undir með krökkunum og vonaðist til að samningar við grunnskólakennara leysist sem allra fyrst þannig að áfram væri hægt að halda uppi góðu skólastarfi svo þeir, nemendurnir, fái þá bestu menntun sem hægt er að veita á Íslandi.