Leið yfir viðræðuslitum
Samfylkingin er leið yfir því að slitnað hafi upp úr viðræðum fimm flokka um myndun ríkisstjórnar, samkvæmt yfirlýsingu sem flokkurinn sendi frá sér í dag vegna slita á fimm flokka viðræðum. „Við töldum góðan möguleika á að þessir flokkar gætu myndað umbótastjórn þar sem í senn yrði unnið að endurreisn heilbrigðis- og menntakerfis og nauðsynlegra fjárfestinga í innviðum ásamt því að koma á kerfisbreytingum í landbúnaði og sjávarútvegi. Við myndum líka vinna að umbóta- og framfaramálum s.s. loftslagsstefnu, atvinnumálum, auknu jafnrétti og nýrri stjórnarskrá, svo fátt eitt sé nefnt,“ segir í yfirlýsingunni.
Flokkurinn telur vel mögulegt að brúa bilið á milli flokkanna og lagði hann til ýmsar hugmyndir um hvernig mætti fjármagna brýn verkefni. „Okkur finnst mikill árangur hafa náðst í viðræðum milli þessara fimm flokka, bæði undir stjórn Katrínar Jakobsdóttur og Birgittu Jónsdóttur. Við erum ánægð með samvinnuna við frábært fólk í öllum þessum flokkum og hlökkum til að taka upp þráðinn að nýju, reynist vilji til þess hjá öðrum“.