Ljón norðursins, kynlíf fornsagna og fleira spennandi

Ljón Norðursins, kápumynd bókar Bjarka Bjarnasonar um Leó Anton Árnason.
Ljón Norðursins, kápumynd bókar Bjarka Bjarnasonar um Leó Anton Árnason.

Í Bókakaffi Bjarna Harðarsonar á Selfossi mun Bjarki Bjarnason rithöfundur kynna bók sína Ljón norðursins sem kom út um liðna helgi. Höfundur byggir bókina upp á viðtölum sem hann tók við Leó Árnason byggingameistara frá Víkum á Skaga.

Leó Anton Árnason var lista- og framkvæmdamaður; skáld, málari, myndhöggvari, byggingarmeistari og fjölbreyttur persónuleiki og þjóðsagnapersóna í lifanda lífi, eins og hann var kynntur í sýningu Safnasafnsins 2014. Hann tók sér snemma listamannsnafnið Ljón Norðursins og undir því nafni hélt hann fjöldann allan af sýningum.

Auk Bjarka og Ljóns Norðursins, segir Óttar Guðmundsson frá kynlífi fornsagna og Magnús Hlynur Hreiðarsson kynnir mynddisk sinn, Feðgar á ferð. Fulltrúar skáldagyðjunnar á þessu kvöldi eru ungskáldin Vilborg Bjarnadóttir með örsagnabók sína Líkham og Atli Antonsson með smásagnabókina Nýbyggingar.

Upplesturinn fer fram fimmtudagskvöldið 1. desember í Bókakaffinu en þar er tekið úr lás klukkan 20 og lestur hefst hálftíma síðar eða 20:30 og stendur í klukkustund.

Fleiri fréttir