Margt um manninn á Mannamótum
Mannamót, viðburður á vegum Markaðsstofa landshlutunna,var haldinn í flugskýli Ernis á Reykjavíkurflugvelli á fimmtudaginn var. Um þrjátíu ferðaþjónustufyrirtæki af Norðurlandi vestra mættu þangað og kynntu starfsemi sína. Var þetta í fjórða sinn sem sýningin var haldin og hafa gestir aldrei verið fleiri.
Þátttakendur af Norðurlandi vestra voru ánægðir hvernig til tókst með Mannamót. Þrátt fyrir leiðindaveður á Þverárfjalli og Holtavörðuheiði kvöldið áður höfðu fjölmargir lagt leið sína suður fyrir heiðar til að taka þátt í viðburðinum. Mikill metnaður var lagður í sýningarbása og kynningarefni. Auk þess að sýna það sem þau hafa upp á að bjóða þótti þátttakendum ekki síður mikilvægt að skoða það sem aðrir eru að gera og mynda tengsl af ýmsum toga.
Mannamót eru kynningarvettvangur og tækifæri til að koma á fundum fagaðila í greininni. Tilgangurinn með því er að kynna landsbyggðarfyrirtæki fyrir ferðaþjónustuaðilum sem staðsettir eru á höfuðborgarsvæðinu. Þannig hjálpa Mannamót til við að mynda tengsl innan ferðaþjónustunnar. Sérstök áhersla er lögð á vetrarferðamennsku.
Markaðsstofur landshlutanna eru sex talsins, þar af ein fyrir Norðurland. Hlutverk þeirra er að samræma markaðs- og kynningarmál í ferðaþjónustu, sjá um útgáfumál, móttöku blaðamanna, ásamt beinni markaðssetningu og vinnu við vöruþróun í ferðaþjónustu. Starfa þær í samvinnu fyrir fyrirtæki í greininni, ferðamálasamtök, atvinnuþróunarfélög, sveitarfélög og aðra hagsmunaaðila.