Ný Skagfirðingabók að koma út

Ný Skagfirðingabók. Mynd: PF
Ný Skagfirðingabók. Mynd: PF

Laugardaginn 5. nóvember verður fagnað útkomu nýrrar Skagfirðingabókar, númer 37 í töluröð, en þess jafnframt minnst að nú eru 50 ár síðan hún kom fyrst út. Á þessum tíma hefur bókin flutt rúmlega 380 greinar af skagfirsku efni á um það bil 7.400 blaðsíðum. Er þar saman kominn gríðarlega mikill fróðleikur úr sögu og mannlífi Skagafjarðar. Nýja bókin flytur 10 greinar af fjölbreyttu efni en höfuðgreinin er um Harald Júlíusson kaupmann og Guðrúnu Bjarnadóttur konu hans, skráð af Sölva Sveinssyni.

Samkoman verður á Mælifelli á Sauðárkróki laugardaginn 5. nóvember frá kl. 14-16. Hjalti Pálsson mun fjalla um Skagfirðingabók í hálfa öld. Sölvi Sveinsson kemur og les úr grein sinni og spjallar við gesti. Einar Kristinn Guðfinnsson alþingisforseti og dóttursonur Haraldar og Guðrúnar ætlar að segja frá upplifun sinni á yngri árum hjá afa sínum og ömmu á Sauðárkróki.

Veitingar verða í boði og allt áhugafólk hvatt til að mæta. Bókin verður til sölu á tilboðsverði.

/Fréttatilkynning

Fleiri fréttir