Ný skrifstofa Neytendasamtakanna á Akureyri
Neytendasamtökin opna á næstu dögum skrifstofu á Akureyri, en samtökin ráku um árabil skrifstofu þar sem síðar var lokað. Ólafur Arnarson, formaður Neytendasamtakanna, segir það mikið ánægjuefni að nú skuli hafa skapast aðstæður, sem gera samtökunum kleift að opna að nýju skrifstofu á Norðurlandi.
Í tilkynningu til fjölmiðla segir að Neytendasamtökin starfi á landsvísu og opnun skrifstofunnar á Akureyri sé mikilvægt skref að því markmiði að veita öllum félagsmönnum, sama hvar þeir búa á landinu, sem besta þjónustu. Skrifstofan verður staðsett í Alþýðuhúsinu við Skipagötu.
Ólafur segir það mikið ánægjuefni að að í forsvari fyrir skrifstofu Neytendasamtakanna á Akureyri verði Brynhildur Pétursdóttir, fyrrverandi alþingismaður. Brynhildur starfaði lengi hjá samtökunum og sat í stjórn þeirra áður en hún tók sæti á Alþingi og veitti m.a. forstöðu skrifstofu samtakanna á Akureyri. Brynhildur mun ennfremur ritstýra Neytendablaðinu og hafa umsjón með heimasíðu samtakanna.
Brynhildur, sem sagði sig úr Bjartri framtíð í gær, er þessa dagana að koma sér fyrir á nýju skrifstofunni en fljótlega verður greint frá opnunartíma á Akureyri á heimasíðu samtakanna.
„Brynhildur Pétursdóttir hefur mjög góða yfirsýn yfir málefni og hagsmunamál neytenda. Hún býr yfir umfangsmikilli reynslu bæði af vettvangi Neytendasamtakanna og á Alþingi Íslendinga. Hún er öflugur liðsmaður í baráttunni fyrir réttindum og hagsmunum neytenda og ég býð hana hjartanlega velkomna til starfa,“ segir Ólafur Arnarson.