Rannveig söng til sigurs

Rannveig Sigrún Stefánsdóttir. Mynd: Skagafjörður.is
Rannveig Sigrún Stefánsdóttir. Mynd: Skagafjörður.is

Söngkeppni félagsmiðstöðvarinnar Friðar í Skagafirði var haldin föstudagskvöldið 9. desember sl. í menningarhúsinu Miðgarði. Á heimasíðu Svf. Skagafjarðar segir að í keppninni hafi verið sex frábær atriði og fór Rannveig Sigrún Stefánsdóttir í 9. bekk Árskóla með sigur af hólmi með flutningi sínum á laginu „Someone like you“ með tónlistarkonunni Adele.

Rannveig mun fara fyrir hönd Friðar í Norður-org, undankeppni söngkeppni Samfés á Dalvík í byrjun næsta árs og keppir þar um að komast í aðalkeppni Samfés í Reykjavík í mars.

Upptöku af siguratriðinu má finna HÉR

Fleiri fréttir