Sæluvika undirbúin
feykir.is
Skagafjörður, Listir og menning
05.02.2010
kl. 15.03

Hafinn er undirbúningur að Sæluviku 2010 en sæluvikan verður að þessu sinn frá 25. apríl til 2. maí.
Fyrir hönd sveitarfélagsins Skagafjarðar er það Guðrún Brynleifsdóttir sem sér um skipulagningu vikunnar en þeir sem hafa áhuga á að setja upp viðburði í Sæluviku eru vinsamlegast beðnir að hafa samband hana: gudrunb@skagafjordur.is eða í síma 455 6115, fyrir 15.mars.
Fleiri fréttir
-
Næturlokanir í Hvalfjarðargöngum í apríl og maí
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla 07.04.2026 kl. 09.26 oli@feykir.isÍ kvöld hefjast framkvæmdir í Hvalfarjarðargöngum vegna endurnýjunar á lýsingu í göngunum. Verður göngunum lokað kl. 21:30 og til kl. 6:00 að morgni alla virka daga (frá mánudegi til föstudags) en áætlað er að framkvæmdum ljúki 29. maí.Meira -
Slys á Almenningum 1935 | Sögumolar Hjalta Pálssonar
Nú eru 90 ár liðin frá hörmulegum slysförum sem urðu í landi Hrauna í Fljótum hinn 4. nóvember 1935 þegar þrír ungir menn og frískir urðu úti við fjárleitir á Almenningum á leið út að Máná á Úlfsdölum. Þeir lögðu af stað frá Máná inn á Almenn-inga mánudagsmorguninn 4. nóvember. Komu þeir eftir hádegi inn í Hraun og höfðu þar skamma viðdvöl en fóru aftur áleiðis heim um tvöleytið. Litlu síðar brast á ægiveður af norðaustri með krapahríð og varð veðurhæð mikil um Úlfsdali og Almenninga.Meira -
„Ægilega vandræðalegt að labba inn kirkjugólfið“
Kristín Birgisdóttir er frá Kornsá í Vatnsdal en býr núna á Blönduósi. Kristín er í sambandi og á eina sex ára skottu. Hún vinnur sem aðstoðarleikskólastjóri í Leikskóla Húnabyggðar, svo mætti líka kalla það vinnu að ala upp barn og mann. Hún rifjaði upp fermingardaginn í FermingarFeyki en Kristíns fermdist frá Undirfellskirkju 19. apríl 1998.Meira -
Vonskuveður annan í páskum og Holtavörðuheiði lokað á hádegi
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla 06.04.2026 kl. 02.38 oli@feykir.isVeðurstofa Íslands spáir vonskuveðri annan í páskum og eru ýmist gular eða appelsínugular viðvaranir í gildi á landinu fram á þriðjudagsmorgun. Veðrið virðist verða verst á sunnan- og vestanverðu landinu en gil viðvörun tekur gildi á Norðurlandi vestra um kl. 16:00 en gert er ráð fyrir að hún detti úr gildi aðfaranótt þriðjudags. „Austan 15-25 m/s og vindhviður staðbundið yfir 35 m/s, hvassast austantil á svæðinu. Einnig má búast við snjókomu eða skafrenningi með slæmu skyggni og versnandi færð. Varasamt ferðaveður,“ segir í viðvörun Veðurstofunnar.Meira -
„Gæti ekki hugsað mér betri stað“ | Þórunn Inga frá Enniskoti í Víðidal segir frá
Síðast heimsóttum við Helgu Hinriks til Moss í Noregi og þar var nú ekki leiðindunum fyrir að fara. En okkur er ekki til setunnar boðið, við vippum bakpokanum á bakið, tékkum á því hvort vegabréfið sé ekki örugglega á vísum stað og dembum okkur í flug til Dúbaí og það á stríðstímum. Auðvitað engin glóra í þessu ferðalagi ef ekki væri fyrir það að við þurfum að taka hús á frænku Helgu, Þórunni Ingu Kristmundsdóttur, frá Enniskoti í Víðidal en þar ólst hún upp með tvíburasystur sinni. Þær eru fæddar árið 1988 og foreldrarnir eru Kristmundur Ingþórsson og Sigrún Herdis Sigurbjartsdóttir.Meira
