Sjómenn samþykktu naumlega

Sjómannaverkfalli lauk í gær eftir að sjómenn höfðu samþykkt nýgerðan kjarasamning með naumum meirihluta atkvæða eða 52,4 prósent. Á kjörskrá voru 2.214 en 1.189 þeirra tóku þátt 623 samþykktu samninginn eða 53,7 prósent. 558 sögðu nei eða 46,9%, auð og ógild atkvæði voru 8 eða 0,7%. Þeir sjómenn sem Feykir ræddi við voru langt frá því að vera sáttir með samninginn.
Talningu atkvæða um samninginn lauk um kl. 21:00 í gærkvöldi og verkfalli sjómanna og verkbanni útgerðarmanna því aflýst í kjölfarið og stuttu síðar voru landfestar losaðar á fyrstu skipunum sem héldu til veiða á ný. Togarar Fisk Seafood, Málmey og Klakkur, héldu á miðin um 10 leytið í gærkvöldi og Arnar mun sigla til hafs í dag.
Feykir forvitnaðist hjá nokkrum sjómönnum hvernig þeim hugnaðist nýi samningurinn og var hljóðið þungt í þeim og enginn sáttur. „Ég er ekki sáttur,“ sagði einn sem vildi ekki koma fram undir nafni „Allur þessi tími og fá eitthvað sem er sjálfsagður hlutur. Vinnufatnaður og frítt fæði.“ Annar sagðist vera með óbragð í munni.
Hér er hægt að nálgast samninginn.
Hægt er að fylgjast með ferðum skipa á Marine Traffic en þar sést að Málmey stefnir til vesturs en Klakkur er staddur á Skagagrunni þegar þetta er skrifað.