Skagfirska mótaröðin heldur áfram
feykir.is
Skagafjörður, Hestar
28.02.2012
kl. 09.44
Skagfirska mótaröðin heldur áfram annað kvöld (miðvikudagskvöld) í reiðhöllinni Svaðastöðum með hörkumóti, með mörgum áhugaverðum hrossum og knöpum. Þá verður keppt í fimmgangi ungmenna, -áhugamanna og meistaraflokki og einnig keppt í tölti í barna og unglingaflokki.
„Mætum í höllina og höfum gaman af“, segir í fréttatilkynningu.
Aðgangseyrir er 1000 kr.
