Skipulagstillögur fyrir Sauðárkrók komnar á Netið
Mánudaginn 23. nóvember var haldinn íbúafundur í FNV, um skipulagsmál á Sauðárkróki. Alta ráðgafafyrirtæki kynnti tillögur að nýju aðalskipulagi fyrir bæinn auk rammaskipulagsuppdrætti.
Hægt er að nálgast tillögudrögin á Skagafjörður.is Vakin er athygli á því að íbúum gest kostur á að koma ábendingum á framfæri til 17.desember. Sitt sýnist hverjum um ágæti tillagnanna og er fólk hvatt til að gera athugasemdir ef því þykir þurfa og nýta sér sinn lýðræðislega rétt um þróun byggðarinnar á Króknum.