Skoða heilsdagsskóla í Varmahlíð
Þann 18. september sl. barst formanni fræðslunefndar Svf Skagafjarðar og fræðslustjóra ábending frá foreldri um vöntun á vistun eftir skóla í Varmahlíð. Síðan hefur málið verið í skoðun innan fræðsluþjónustunnar, starfsmenn hafa aflað gagna, miðlað upplýsingum og skoðað ýmsar sviðsmyndir.
Í fundargerð fræðslunefndar kemur fram að í kjölfar ábendingarinnar hafi formaður átt samtal við málsaðila sem og formann foreldrafélags Leikskólans Birkilundar og bent þeim á að senda formlegt erindi til fræðslunefndar. Það erindi barst frá stjórn foreldrafélagsins 10. janúar sl. Nefndin tekur vel í erindið og mun skoða það áfram, bæði með tilliti til húsnæðis og starfsmannahalds.
Á næstunni verður gerð könnun meðal foreldra og jafnframt verður málið tekið inn á fund Samstarfsnefndar með Akrahreppi, sem er eignaraðili skólans ásamt Sveitarfélaginu Skagafirði.
Jóhanna Ey Harðardóttir, fulltrúi Byggðalistans, lét bóka að gaman hefði verið að vita af því að þessi vinna væri í gangi. Fagnar hún að vinna sé komin í gang en telur að skilvirkari vinnubrögð innan nefndarinnar að fjallað sé um tiltekin mál áður en vinna er hafin innan sviðsins.
Bjarni Jónsson fulltrúi VG og óháðra sagði í sinni bókun að að æskilegt hefði verið að málið hefði komið fyrr fyrir nefndina til umfjöllunar áður en vinna var sett af stað og er þar tekið undir bókun fulltrúa byggðalista. Málið er hinsvegar gott og mikilvægt að sveitarstjórn hafi lýst stuðningi við úttekt á þörf fyrir frístundaheimili við Varmahlíðarskóla.