Sögusetrið óskar eftir samstarfssamning
Arna Björg Bjarnadóttir, fyrir hönd Söguseturs íslenska hestsins, hefur sent sveitarfélaginu Skagafirði ósk um samstarfssamning til þriggja ára sem tryggi Sögusetri eitt stöðugildi.
Sögusetrið hyggst sumarið 2010 opna fyrsta hluta sýningar um íslenska hestinn.
Var erindi Örnu Bjargar tekið fyrir á Byggðaráðsfundi sem samþykkti að vísa erindinu til gerðar fjárhagsáætlunar 2010. Jafnframt var erindinu vísað til umfjöllunar í atvinnu- og ferðamálanefnd og menningar- og kynningarnefnd.