Sóldís með tónleika í kvöld
feykir.is
Skagafjörður, Listir og menning
24.04.2013
kl. 16.10
Kvennakórinn Sóldís kveður veturinn með tónleikum í Sauðárkrókskirkju í kvöld klukkan 20:30. Kórinn hefur verið á faraldsfæti undanfarið og sungið í nágrannasýslum og fengið lofsamlega dóma.
Söngstjóri er Sólveig S. Einarsdóttir, undirleikari Rögnvaldur Valbergsson og einsöngvarar þær Ólöf Ólafsdóttir og Sigríður Margrét Ingimarsdóttir.
Miðaverð er kr. 2500 og gestir beðnir að athuga að ekki er tekið við greiðslukortum.
