Söngur að sunnan
Karlakór Reykjavíkur verður á faraldsfæti næstkomandi laugardag en þá heimsækir hann Skagafjörð og Siglufjörð og heldur tónleika á báðum stöðum. Fyrri tónleikarnir verða í Miðgarði í Skagafirði og hefjast þeir klukkan 14.00. Að þeim loknum verður ekið til Siglufjarðar þar sem kórinn mun syngja í kirkjunni kl. 20. Með í för eru sópransöngkonan Sigrún Hjálmtýsdóttir, Diddú, auk tónlistarhjónanna Önnu Guðnýjar Guðmundsdóttur píanóleikara og Sigurðar Ingva Snorrasonar klarínettuleikara. Þá mun kórfélaginn og Skagfirðingurinn Árni Geir Sigurbjörnsson tenór syngja einsöng á tónleikunum. Stjórnandi Karlakórs Reykjavíkur er Friðrik S. Kristinsson.
Karlakór Reykjavíkur fagnar 90 ára afmæli í ár, en hann var stofnaður 3. janúar 1926 af Sigurði Þórðarsyni tónskáldi sem var jafnframt fyrsti stjórnandi kórsins. Ferðin norður er liður í að fagna þessum tímamótum og er það engin tilviljun að þessir áfangastaðir séu valdir því kórinn á nokkur tengsl við þá báða. Í fyrstu söngferð sinni, sem farin var með Gullfossi árið 1929, kom kórinn við á Siglufirði og hélt þar tónleika. Voru það þriðju tónleikar kórsins í þeirri ferð, en áður hafði hann sungið á Bíldudal og Ísafirði. Þá eiga nokkrir kórmenn ættir sínar að rekja til Siglufjarðar og elstu félagarnir, bræðurnir Jón og Guðjón Hallur Hallssynir slitu þar barnsskónum. Þeir bræður hafa ljáð kórnum krafta sína fjölmarga áratugi, Jón í meira en 60 ár og Guðjón hátt á sjötta tug ára.
Margir Skagfirðingar hafa sungið með Karlakór Reykjavíkur. Frægastur þeirra er Stefán Guðmundsson Íslandi, en auk þess að vera almennur kórfélagi söng hann einsöng með kórnum víða um lönd. Það samstarf var hljóðritað nokkrum sinnum og enn þann dag í dag heyrist í útvarpinu upptaka úr Tívolí í Kaupmannahöfn frá árinu 1937 af hinu þekkta Ökuljóði; Áfram veginn í vagninum ek ég. Á ferðum sínum með kórnum hafði Stefán tvær forláta ferðatöskur úr svínsleðri sem Karlakór Reykjavíkur á og er önnur þeirra varðveitt í Stefánsstofu í Miðgarði. Í dag syngja ekki færri en fimm Skagfirðingar með Karlakór Reykjavíkur, þar á meðal áðurnefndur Árni Geir.
Karlakór Reykjavíkur er skipaður um 70 kórmönnum á þessum tónleikum og nokkrir makar þeirra slást einnig í förina. Þannig verða meira en hundrað manns með í þessari tónleikaferð sem hlakka til að hitta Siglfirðinga og Skagfirðinga og eiga með þeim notalega söngstund.
Aðgöngumiðar verða seldir á hóflegu verði við innganginn, eða aðeins kr. 1500.
/Fréttatilkynning