Stefna á að hefja framkvæmdir í næstu viku
feykir.is
Skagafjörður
13.07.2012
kl. 11.09
Vonir standa til að framkvæmdir getir hafist við Árskóla á Sauðárkróki í næstu viku að sögn Stefáns Vagns Stefánssonar formanns Byggðarráðs Svf. Skagafjarðar.
Til stóð að hefjast handa við viðbygginguna fyrir mánuði síðan en tafir urðu vegna ófyrirséða atvika, samkvæmt Stefáni Vagni, og þurfti að fresta framkvæmdum. Nú sér fyrir endann á því og skóflustungan verður vonandi í næstu viku.
