Stemning hjá kaffiklúbbnum sunnan heiða
Kaffiklúbburinn Skín við sólu, sem samanstendur af Skagfirðingum á höfuðborgarsvæðinu, hefur í mörg ár hist á hverjum laugardagsmorgni kl. 10 á kaffihúsum sunnan heiða. Þar eru heimsmálin leyst hverju sinni og rifjaðar upp gamlar sögur. Á heimasíðu Skagfirðingafélagsins hefur verið sett inn dagskrá fram á vor og eru Skagfirðingar hvattir til að fjölmenn á þessa skemmtilegu fundi. Tíðindamaður félagsins kíkti í kaffi á Silfrinu í verslanamiðstöðinni Firðinum í Hafnarfirði laugardaginn 10. desember sl. og var þar hin fínasta mæting og rífandi stemning, kominn jólaandi yfir mannskapinn.
Kaffigestir fengu að heyra nokkrar sögur upplesnar af Birni Jóhanni úr Skagfirskum skemmtisögum 5 og var þeim vel tekið. Þar segir einnig að Hreinsi Sig hafi kunnað allar sögurnar og gat bætt við þær flestar og mundi hvað gerðist næst í framvindunni.
Kaffiklúbburinn lýkur svo jafnan fundaröðinni að vori í Ljósheimum í Skagafirði.
Sjá nánar HÉR