Stephen Walmsley ráðinn þjálfari með Hauki Skúla
Stephen Walmsley hefur verið ráðinn til Tindastóls sem aðalþjálfari m.fl. karla í knattspyrnu og verður hann með stjórnartaumana ásamt Hauki Skúlasyni en gengið var frá ráðningu hans í haust. Þeir munu því saman sjá um þjálfun liðsins á komandi tímabili. Haukur Skúlason þjálfaði liðið ásamt Stefáni Arnari Ómarssyni sl. tímabil með frábærum árangri.
Stefán Arnar flutti til Svíþjóðar í haust og því hefur nú verið gegnið frá ráðningu á Stephen Walmsley sem eins og áður sagði mun starfa við hlið Hauks. Stephen Walmsley var kjörinn besti leikmaður liðsins á síðasta ári en hann átti frábært tímabil með Tindastóli. „Stephen var ekki síður góður liðsmaður utan vallar en innan og það eru forréttindi að fá slíkan mann í okkar hóp. Hann þjálfaði yngri flokka hjá Tindastóli s.l. sumar og skilaði því verki frábærlega,“ segir Ómar Bragi Stefánsson formaður knattspyrnu deildar Tindastóls.