Stórhríð í spánum

Veðurstofa Ísland hefur gefið út stormviðvörun en strekkings suðvestanátt með skúrum eða slydduéljum er væntanleg sunnan og vestanlands í dag. Bjart verður NA-til en einhver rigning verður um tíma S- og V-lands seint í kvöld.
Það verður kröftugri útsynningur á morgun með myndarlegum éljabökkum, en yfirleitt hægari og úrkomulítið NA-til eins og áður. Vindur verður vestlægari annað kvöld og áfram hvassviðri eða stormur SV-til, en það lægir víða N- og A-lands og þar mun líklega frysta.
Það verður svo norðanáttin sem tekur við þegar kemur fram á miðvikudag með snjókomu fyrir norðan, en jafnframt léttir til syðra. Búast má svo við norðan stórhríð á fimmtudag, einkum þá seinnipartinn. Útlit fyrir að dragi ekki almennilega úr norðanáttinni og ofankomu fyrr enn á sunnudag.
Fyrir Strandir og Norðurland vestra er spáin eftirfarandi:
Á þriðjudag:
Gengur í suðvestan 15-23 m/s með éljum fyrst S- og V-lands, en rigning eða slydda um tíma S-lands. Hægari og úrkomulítið NA-lands. Hiti 1 til 6 stig. Lægir víða seint um kvöldið og frystir.
Á miðvikudag:
Norðvestan 10-18 m/s, hvassast á annesjum og syðst. Snjókoma eða él, einkum N-til. Norðlægari seinnipartinn og rofar til syðra. Frost 0 til 5 stig.
Á fimmtudag:
Norðan stórhríð, en úrkomulítið S-lands. Vægt frost.
Á föstudag:
Ákveðin norðvestlæg átt með snjókomu eða éljum N-til, en bjart með köflum syðra. Frost 0 til 8 stig.
Á laugardag og sunnudag:
Hægari norðlæg átt með éljum N-til, en bjart með köflum syðra. Áfram fremur kalt í veðri.
Spá gerð: 13.11.2016 21:11. Gildir til: 20.11.2016 12:00.