Stormur í dag og útlit fyrir hvít jól

Svona lítur spákortið út fyrir aðfangadag.
Svona lítur spákortið út fyrir aðfangadag.

Veðurstofa íslands hefur gefið út viðvörun en búist er við stormi, eða meira en 20 m/s norðvestantil á landinu og á hálendinu í dag. Þetta á einnig við víða um land í nótt og aftur seint á morgun. Þá má búast við mikilli úrkomu á Suðausturlandi í nótt. Í nótt verður sunnan og suðaustan 18-25 m/s og talsverð rigning eða slydda á spásvæði Stranda og Norðurlands vestra.

Mun hægari verður um hádegi á morgun. Hiti 1 til 7 stig. Vestan og suðvestan 18-25 m/s með skúrum eða éljum síðdegis, fyrst S-lands, norðlægari og snjókoma NV-til, en talsvert hægari vindur norðaustantil og þurrt að mestu. Kólnandi veður.

Á miðvikudag:
Vestlæg eða breytileg átt 5-13 m/s og víða dálítil él. Frost 0 til 8 stig, kaldast N-lands.

Á fimmtudag:
Ákveðin suðvestanátt með éljum, en yfirleitt þurrt á N- og A-landi. Áfram fremur kalt í veðri.

Á föstudag:
Vaxandi austan- og síðar norðaustanátt með snjókomu og síðar slyddu og jafnvel rigningu, fyrst suðaustantil. Hlýnar í veðri.

Á laugardag:
Útlit fyrir stífa vestlæga eða breytilega átt með snjókomu eða slyddu og síðar éljum og kólnandi veðri.

Á sunnudag:
Breytileg vindátt, úrkomulítið og frost um mest allt land.

Fleiri fréttir