Styrktarkvöld í Höfðaborg á þrettándanum

Á þrettándadagskvöld, þann 6. janúar, verður haldið Pub Quiz eða Barsvar í Félagsheimilinu Höfðaborg á Hofsósi. Tilefnið er að safna fé til styrktar Jóhannesi Veigari Jóhannessyni og Heiðrúnu Eddu Ingþórsdóttur sem eignuðust tvíburadætur í haust eftir tæplega 25 vikna meðgöngu. Unga parið, sem átti fyrir 18 mánaða dóttur, er búsett á Dalvík en Veigar er fæddur og uppalinn á Hofsósi og Heiðrún á Blönduósi.
Litlu tvíburasysturnar komu í heiminn þann 23. október og fæddist önnur þeirra andvana en álitið hafði verið í nokkurn tíma að hún hefði litningagalla sem gerði lífslíkur hennar sáralitlar. Hún var skírð Eva Björk og var borin til grafar á Dalvík um miðjan nóvember. Hin systirin, sem kölluð er Agnarögn, vó aðeins 724 grömm við fæðingu eða tæpar þrjár merkur og hefur hún dvalið á Vökudeild Landspítalans frá fæðingu. Hún braggast ótrúlega vel að sögn Hörpu Kristinsdóttur, móður Veigars og er nú orðin 2.672 grömm. Í morgun gekkst hún undir aðgerð vegna augnsjúkdóms og gekk hún vel en óvíst er um árangur aðgerðarinnar fyrr en eftir eina til tvær vikur.
Eins og gefur að skilja hefur þessi tími verið erfiður fyrir foreldrana sem hafa þurft að dvelja í Reykjavík þar sem þau eru fjarri heimili sínu og fjölskyldu og geta ekki stundað atvinnu, auk þess að þurfa að standa straum af húsnæðiskostnaði. Enn er ekki víst hve langur tími líður þar til Agnarögn litla verður útskrifuð af sjúkrahúsinu.
Stofnaður var styrktarreikningur fyrir fjölskylduna og er ábyrgðarmaður reikningsins Guðrún Helga Magnúsdóttir, frænka Veigars. Reikningsnúmerið er 0177-05-260070, kt: 010856-3889. Harpa segir fjölskylduna hafa fengið margar góðar kveðjur og vera mjög þakkláta fyrir allan þann stuðning og hlýhug sem þeim hefur verið sýndur.
Höfðaborg opnar kl. 21:00 á laugardaginn en spurningakeppnin hefst kl. 21:30. Þátttökugjald er 1.500 kr. og rennur öll innkoma kvöldsins til fjölskyldunnar. Allir sem eiga þess kost eru hvattir til að mæta.
Hægt er að fylgjast með Agnarögn á Facebooksíðunni Styrktarsíða fyrir Agnarögn og foreldra hennar.