Þakplötur fuku á Hofsósi

Björgunarsveitin Grettir á Hofsósi var kölluð út í gær er þakplötur höfðu losnað á íbúðarhúsi skammt utan Hofsóss en einnig losnuðu plötur á hlöðuþaki í Hofsósi. Þá fóru af stað fatagámur og gasgámur sem stóðu við kaupfélagið og gekk sveitin tryggilega frá þeim. Að sögn Elvars Má Jóhannssonar hefur fólk búið sig vel undir veðurofsann og gengið vel frá hlutum. Engin útköll voru hjá björgunarsveitum í Skagafirði í nótt þrátt fyrir leiðindaveður.
Annan jóladag fór Flugbjörgunarsveitin í Varmahlíð á Vatnsskarðið og aðstoðaði ferðamenn sem lent höfðu utanvegar á bíl sínum. Engin slys urðu á fólki og hélt það för sinni áfram.
Eins og staðan er núna er ekkert ferðaveður, mikið hvassviðri og Holtavörðuheiðin ófær þegar þetta er skrifað.
Þess má geta að björgunarsveitir landsins hefja sína árlegu flugeldasölu í dag en þær eru stærstu tekjulind sveitanna.