Þrjár húnvetnskar laxveiðiár á topp 10 í sumar

Húni.is greinir frá því að laxveiði sé nú lokið í flestum ám landsins og þá sér í lagi þeim sem flokkaðar eru sem náttúrulegar ár. Þrjár húnvetnskar ár eru á lista yfir tíu Veiði í ám sem byggja á seiðasleppingum verður stunduð fram eftir þessum mánuði. Þær húnvetnsku laxveiðiár sem eru á lista Landssambands veiðifélaga yfir aflahæstu ár landsins hafa allar lokað. Á topp tíu listanum eru þrjár húnvetnskar ár, Miðfjarðará, Blanda og Laxá á Ásum.
Miðfjarðará endaði í 3765 löxum og er í öðru sæti yfir aflahæstu ár landsins, á eftir Ytri-Rangá sem skilað hefur 7098 löxum og er þar enn stunduð veiði. Blanda endaði í 1433 löxum og er í sjöunda sæti á listanum. Veiðin í Blöndu í sumar var töluvert minni en í fyrra þegar 2386 laxar komu á land. Laxá á Ásum er í tíunda sæti með 1108 laxa og er það mun meiri veiði en í fyrr þegar áin endaði í 620 löxum. Þess ber að geta að þá var veitt á tvær stangir en í sumar var þeim fjölgað í fjórar.
Víðidalsá endaði í 781 löxum sem er nokkuð minna en í fyrra þegar 1137 laxar veiddust og Vatnsdalsá endaði í 714 löxum samanborið við 853 í fyrra. Lokatölur fyrir Hrútafjarðará eru ekki komnar en 27. september höfðu veiðst 360 laxar í ánni en lokatölur í fyrra voru 551 lax. Svartá endaði í 128 löxum sem er lítil veiði samanborið við undanfarin á en lokatölur í fyrra urðu 367 laxar, segir loks á Húna.is.
Á myndinni sem fylgir hér sést veiðimaðurinn Nils Folmer Jorgensen með 106 sm lax í Víðidalsá - eða „þann litla“ því nokkrum klukkustundum síðar setti hann í stærsta lax sumarsins eða 111 sm hrygnu. Hann gaf Feyki góðfúslegt leyfi til að birta þessa mynd.