Umgengni ábótavant
Á lokafundi Umhverfis- og samgöngunefndar sem haldinn var á dögunum kom fram að umgengni á gámasvæðum í Skagafirði er víða ábótavant.
Nefndin hvetur notendur til betri umgengni og að virða merkingar á gámum. Þá var samþykkt á fundinum að bæta við brotajárnsgámi við Breið og timburgám í Fljótum, við Nýrækt. Kom nefndarmönnum saman um að af sveitarfélagsins hálfu væri þörf á að fylgjast betur með gámasvæðum.