Útvarp Krókur fer í loftið í dag
feykir.is
Skagafjörður
29.04.2010
kl. 10.55
Útvap Krókur fm 93,7 mun fara í loftið klukkan 17:00 í dag en að þættinum standa nemendur í fjölmiðlavali Árskóla.
Í þættinum verður boðið upp á viðtöl, söng, gleði glens og gaman að hætti Árskólanema. Aðeins verður um þennan eina þátt að ræða svo nú er um að gera að vera rétt stilltur.
Fleiri fréttir
-
Nýr Ford í dagþjónustuna í Húnaþingi vestra
Fyrir helgi var afhentur nýr bíll í dagþjónustu í Húnaþingi vestra. Bíllin er Ford Transit 350 L3. Hann er búinn sjö farþegasætum í farþegarými og getur tekið tvo hjólastjóla ef þrjú sæti eru lögð til hliðar. Hann er einnig útbúinn hjólastjólalyftu.Meira -
Skagavegur milli Harrastaða og Brunanáma kominn í útboð
Vegagerðin hefur boðið út ný- og endurbyggingu Skagavegar á um 7 km kafla auk nýbyggingar á um 0,7 km kafla á Brekknavegi. Um er að ræða endurbyggingu núverandi vegar að mestu leiti fyrir utan færslu á veglínu, um 500 m. norðan við bæinn Hof. Einnig felst í verkinu færsla tengingar Brekknavegar (7425) og nýbygging hans á um 700 m kafla.Meira -
Rabb-a-babb 244: Soffía Einars
Það er Króksarinn Soffía Einarsdóttir sem svarar fyrsta Rabbi ársins í Feyki. Hún er af ´68 árganginum, alin upp á Bárustígnum en foreldrar hennar Einar Helga og Brynja Jósefs. Nú býr Soffía í Skerjafirðinum í Reykjavík og er í sambúð með Sigurði Áss Grétarssyni. „Ég á tvo drengi fædda 1996 og 2002 og sex stjúpbörn. Fimm þeirra á sambýlismaður minn og svo á ég eina stjúpdóttur af fyrra sambandi.“ Hún er kennari í grunninn með B.ed gráðu. „Sérnám eftir kennaranámið er náms- og starfsráðgjöf sem ég tók í HÍ og starfa sem sérfræðingur við ráðgjöf í starfsendurhæfingu hjá Virk í VR.“Meira -
Samið um for- og verkhönnun Fljótaganga
Vegagerðin og COWI Ísland undirrituðu miðvikudaginn 28. janúar samning um for- og verkhönnun Fljótaganga, vegagerðar á Siglufjarðarvegi milli Stafár í Fljótum og tengingu við núverandi Siglufjarðarveg í botni Siglufjarðar. For- og verkhönnun skal að fullu lokið í nóvember 2026.Meira -
Eins og ein stór fjölskylda
Kvennalið Tindastóls er nú á öðru ári sínu í Bónus deildinni en Tindastóll hafði ekki átt lið í efstu deild kvennaboltans frá því um aldamót. Það var góðkunningi körfuboltans á Króknum, Israel Martín, sem var kallaður til og fenginn til að taka við þjálfun liðsins af Helga Frey Margeirssyni sem hafði náð góðum árangri með liðið tímabilið áður. Sætið í efstu deild kom þó til af því að lið Fjölnis dró lið sitt úr keppni og tækifæri gafst sem körfuknatt-leiksdeild Tindastóls ákvað að grípa. Martín þjálfari fékk fimm erlenda leikmenn til liðs við Tindastól á fyrra tíma-bilinu en skipti þeim öllum út síðastliðið sumar og fékk þá til liðsins fjóra erlenda leikmenn og þar á meðal var hin spænska Marta Hermida sem hefur verið burðarás liðsins í vetur ásamt hinni bandarísku Maddie Sutton.Meira

