Vegagerðin varar við skemmdum í slitlagi

Mynd af vef Vegagerðarinnar. Slitlagsskemmdir við Gljúfurá í Borgarfirði.
Mynd af vef Vegagerðarinnar. Slitlagsskemmdir við Gljúfurá í Borgarfirði.

Vegagerðin vill vekja athygli vegfarenda á því að slitlag er víða illa farið eftir veturinn og þá umhleypinga sem verið hafa undanfarið. Þegar snjóa leysir koma þessar skemmdir í ljós og vinnur Vegagerðin að því að bæta þær eins fljótt og kostur er en vegna þess hve þær eru umfangsmiklar er ekki unnt að lagfæra allt samstundis. Vegfarendur eru því beðnir að aka með gát og vera viðbúnir hugsanlegum skemmdum í slitlagi, hvort heldur sem er í malbiki eða klæðningu.

„Ekki er hægt að sjá fyrir og tímasetja áætlun í viðhaldi á vegskemmdum enda geta þær myndast skyndilega. Erfitt er að gera sér grein fyrir ástandi undirlags vegar og geta aðstæður því verið ófyrirsjáanlegar. Starfsmenn Vegagerðarinnar hafa eftirlit með vegum og grípa til aðgerða um leið og þeir verða varir við eða fá tilkynningar um holur á vegum,“ segir í frétt á heimasíðu Vegagerðarinnar.

Ökumenn eru beðnir að vera vakandi fyrir því að slitlagið er ekki alls staðar eins gott og ætti að vera. Því er aðgæsla ökumanna besta leiðin til að forðast tjón. 

Fréttina í heild sinni má lesa á vef Vegagerðarinnar á slóðinni http://www.vegagerdin.is/upplysingar-og-utgafa/frettir/illa-farin-slitlog

 

Fleiri fréttir