Verið stækkar

Fyrir skömmu var hafist handa við stækkun á Verinu um 740 fm sem mun gerbreyta allri  vinnuaðstöðu Vermanna og skapa ný sóknarfæri. Byggingin mun  rísa hátt á Eyrinni og setja svip á hafnarsvæðið og jafnvel Sauðárkrók.

-Við erum í dag sæmilega sett með rannsóknaraðstöðu en önnur vinnuaðstaða er orðin alltof lítil og óhentug, segir Gísli Svan Einarsson framkvæmdarstjóri Versins. -Hér hefur starfsfólki fjölgað  og það má segja að það sé „lúxusvandamál“  að þetta húsnæði er í dag orðið alltof lítið.

Verið hefur í dag til umráða 1700 fm og eru þeir fullnýttir og hugsa menn sér því gott til glóðarinnar að geta fjölgað verkefnum og starfsfólki.

Fleiri fréttir