Vetrarsólstöður í dag

Í dag, 21. desember eru sólhvörf að vetrarlagi eða vetrarsólstöður, en þá er sólargangur stystur á himni. Vísar orðið sólstöður til þess að sólin stendur kyrr, það er hættir að hækka eða lækka á lofti. Þessi árstími er heiðnum mönnum hátíðlegur ekki síður en þeim kristnu en því er fagnað að sólin fer hækkandi á lofti. Þá eru haldin jólablót hjá goðum ásatrúarmanna og blótað til heilla Freys, árs og friðar.
Í Efra-Ási í Hjaltadal í Skagafirði býr Árni Sverrisson kúabóndi ásamt fjölskyldu sinni en hann vígðist til goða í sumar og ber því sæmdarheitið Hegranesgoði. Feykir tók hús á goðanum og forvitnaðist um áhuga hans á ásatrúnni.
„Þetta byrjaði fyrir löngu síðan. Pabbi og mamma gáfu mér teiknimyndasögu um goðheima og ég heillaðist alveg af norrænni goðafræði. Svo fékk ég í fermingargjöf bók sem heitir Goð og garpar sem ég las spjaldanna á milli. En tíðarandinn var sá að ég var þægur og góður og fermdist eins og gengur og gerist,“ segir Árni en það var svo löngu síðar að vissir atburðir verða í þjóðkirkjunni sem hann gat ekki sætt sig. Þá tók hann þá ákvörðun að segja sig úr þjóðkirkjunni og lá leiðin beint í Ásatrúarfélagið. Þegar rennt er upp heimreiðina að Efra-Ási blasir stórt og mikið hof við sem hafist var handa við að byggja árið 2010.
Tilkoma þess er sérstæð og segir Árni að þarna hafi verið svo leiðinlegur blettur og ekki hægt að slá. „Við ákváðum hjónin í sameiningu að búa okkur til lítið, eitthvað í gömlum stíl. Ætluðum að hafa þetta um 30 fm sem endaði svo í 80 fm. Þá var ákveðið að hafa þetta bara sem hof,“ segir Árni en Jóhanna Kjalnesingagoði helgaði svo hofið þann 19. júlí 2014. Jóhanna hafði meira á prjónunum því það var þá sem hún bað Árna að íhuga það að fara í ferlið að verða goði. Hann segist hafa tekið sér um tvo mánuði til að ákveða sig því hann sé ekki mikið fyrir það að tala yfir fólki. „Einhvern veginn þegar maður gerir eitthvað sem manni líður vel með er þetta svo miklu auðveldara,“ segir hann en ákvörðunin var á þá leið að hann fer í þjálfun.
Í kvöld verður haldið vetrarsólstöðublót í Ásheimi, hofinu sem Árni reisti í Efra-Ási. Hefst blótið klukkan 20:00 og eru allir velkomnir.
Árni Hegranesgoði er í viðtali í seinasta Feyki ársins sem kemur út í dag og þar er hægt að forvitnast nánar um goðann og ásatrúna.