Vetur konungur hefur heilsað

Menn þurftu að taka fram skóflurnar á Sauðárkróki í morgun. Mynd: KSE
Menn þurftu að taka fram skóflurnar á Sauðárkróki í morgun. Mynd: KSE

Nú hefur vetur konungur heilsað á Norðurlandi vestra. Í gær og í fyrradag féllu ýmsir viðburðir niður vegna veðurs og röskun varð á skólaakstri. Morgunblaðið barst ekki í hús í morgun og víða voru menn að moka til að koma bílum út úr bílastæðum á Sauðárkróki í morgun.

Samkvæmt veg vegagerðarinnar nú rétt fyrir klukkan níu stendur yfir mokstur í Vatnsdal, á Svínvetningabraut, Þverárfjalli og Siglufjarðarvegi. Þæfingur er á Vatnsnesi og skafrenningur á Vatnsskarði. Þá er éljagangur og hálka á Öxnadalsheiði. Einnig er éljagangur og N14m/s á Holtavörðuheiði. Á Skaga er snjóþekja á vegum.

Fleiri fréttir