VG á ferð á Sauðárkróki

Kolbeinn Proppé, Lilja Rafney Magnúsdóttir og Bjarni Jónsson. Mynd: KSE
Kolbeinn Proppé, Lilja Rafney Magnúsdóttir og Bjarni Jónsson. Mynd: KSE

Þingmennirnir Lilja Rafney Magnúsdóttir og Kolbeinn Proppé heimsóttu Sauðárkrók í gær og fóru um bæinn í fylgd Bjarna Jónssonar, sem skipaði annað sæti á lista VG í Norðvesturkjördæmi fyrir síðustu alþingiskosningar.

Þau funduðu meðal annars með byggðaráði og heimsóttu fyrirtæki og stofnanir, m.a. Verið, Iceprótein og Flokku. Meðfylgjandi mynd tók blaðamaður Feykis þegar þau litu inn hjá Nýprent. Í gærkvöldi var svo opinn fundur á Kaffi Krók.

Fleiri fréttir