Vildi reisa íbúðargámabyggð við Freyjugötu

Skipulags- og byggingarnefnd Skagafjarðar hafnaði á fundi sínum í gær umsókn Ágústs Andréssonar fyrir hönd kjötafurðarstöðvar KS þar sem sótt var um stöðuleyfi fyrir vinnubúðir sem staðsettar yrðu syðst á bílaplani gamla bílaverkstæðisins við Freyjugötu.

Var um að ræða 15 einingar og er samtals flatarmál þeirra um 330 fermetrar. Sótt var um stöðuleyfi og framlengingu á því meðan lóðin er ekki notuð fyrir annað. Skipulags- og byggingarnefnd hafnaði  erindinu þar sem  nefndin sér sér ekki fært að veita leyfi fyrir íbúagámabyggð inni á íbúðarsvæðum.

Fleiri fréttir