Vilhelm Vilhelmsson ráðinn forstöðumaður Rannsóknaseturs HÍ á Norðurlandi vestra

Vilhelm Vihelmsson. Mynd: hi.is
Vilhelm Vihelmsson. Mynd: hi.is

Vilhelm Vilhelmsson, sagnfræðingur frá Hvammstanga, hefur verið ráðinn forstöðumaður Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Norðurlandi vestra sem er eitt rannsóknasetra Stofnunar rannsóknasetra Háskóla Íslands. Megináhersla þess í rannsóknum er sagnfræði. Starfsstöð setursins er á Skagaströnd.

Á vef Háskóla Íslands segir að í nóvember sl. hafi verið auglýst til umsóknar starf forstöðumanns rannsóknasetursins með áherslu á sagnfræði og bárust tvær umsóknir um starfið. Að loknu dómnefndar- og valnefndarferli var Vilhelm ráðinn forstöðumaður Rannsóknaseturs HÍ á Norðurlandi vestra frá 1. febrúar.

Vilhelm lauk doktorsprófi í sagnfræði frá Háskóla Íslands 2015, en áður hafði hann lokið BA prófi í sagnfræði frá Kaupmannahafnarháskóla (2009) og meistaraprófi frá Háskóla Íslands (2011). Vilhelm hefur sérhæft sig í rannsóknum á félagssögu, verkalýðssögu og sögu alþýðunnar, þó rannsóknasvið hans sé víðara. Doktorsritgerð hans bar heitið: „Sjálfstætt fólk? Vald og andóf á Íslandi á tímum vistarbands.“

Sjá nánar HÉR

Fleiri fréttir