Vilja hagræðingartillögur frá íbúum.

    Sveitarfélagið Skagafjörður auglýsir þessa vikuna eftir tillögum frá íbúum í Skagafirði um hvernig best sé að hagræði í rekstri sveitarfélagsins Skagafjarðar og nýta um leið fjármuni sveitarfélagsins sem best.

 Á heimasíðu sveitarfélagsins segir að framundan sé krefjandi vinna við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2011 og sé það ósk þeirra sem að þeirri vinnu koma að íbúar vinni að þessu með þeim. Eru íbúar beðnir að senda hugmyndir sínar á netfangið

skagafjordur@skagafjordur.is  eða sér sérstakt athugasemdaform á heimasíðu sveitarfélagsins www.skagafjordur.is  

Fleiri fréttir