Visit Skagafjörður nú á ensku
Skagfirski ferðavefurinn, www.visitskagafjordur.is hefur nú verið opnaður á ensku. Á vefnum er hægt að nálgast upplýsingar um alla ferðaþjónustu í Skagafirði á einum stað, auk upplýsinga um áhugaverða staði og héraðið í heild. Vefurinn er rekin af sveitarfélaginu Skagafirði en uppfærsla hans er í höndum Upplýsingamiðstöðvarinnar í Varmahlíð. Í tilkynningu á heimasíðu Skagafjarðar kemur fram að allar ábendingar um efni vefsins séu vel þegnar í netfangið info@skagafjordur.is Á síðunni má nú m.a. finna upplýsingar um allar réttir í Skagafirði auk fleiri upplýsinga sem geta verið hagnýtar fyrir fólk á ferðinni. |