Eldur í Húnaþingi á næsta leiti

Frá Eldi í Húnaþingi.
Frá Eldi í Húnaþingi.

Unglist kynnir með stolti hina árlegu hátíð Eld í Húnaþingi sem nú er haldin í 16. sinn 25. – 29. júlí næstkomandi. Dagskráin er sneisafull af fjölskylduatburðum, tónlist, sviðslistum, fyrirlestrum, íþróttaviðburðum og leikjum sem allir geta tekið þátt í.

Meðal þess helsta sem er í boði í ár eru:
Moses Hightower, Paparnir, Ásgeir Trausti, Ylja, og hinir margverðlaunuðu búksláttarmenn Body Rythym Factory ásamt leikverkinu Tatterdamalion – báðir þessir erlendu atburðir eru fjölskylduvænir. Hinn árvissi atburður þar sem heimamenn koma fram, Mello Musika, er á sínum stað; sápurennibraut, brunaslöngufótbolti, og fjölskyldudagurinn eru líka í boði í ár.  Sverrir Bergmann og Halldór Gunnar spila í Borgarvirki.

Greta Clough, listrænn stjórnandi hátíðarinnar, segir „Eldur er einstök hátíð sem fagnar og endurspeglar hvað það er sem skapar samfélag okkar hér í Húnaþingi vestra.  Í ár bryddum við upp á nýjungum í dagskránni sem endurspegla sögu Eldsins á sama tíma og við horfum fram veginn og fögnum þeim tækifærum sem svæðið, hátíðin, og samfélagið okkar sem verður stöðugt fjölbreyttara hefur upp á að bjóða. Það er okkur mikil ánægja að kynna fyrir ykkur þessa fjölbreyttu dagskrá og vonum að allir finni eitthvað sem vekur áhuga þeirra, og jafnvel eitthvað nýtt að prófa.“ 

80% atburða á Eldi í Húnaþingi eru ókeypis fyrir gesti. Til að skrá sig á námskeið og sérstaka viðburði skal senda tölvupóst á eldur@eldurihun.is
Forsala á atburði sem selt er inn á er hafin og hægt er að kaupa miða á heimasíðu hátíðarinnar eldurihun.is með millifærslu eða netgreiðslu.
Frekari upplýsingar má finna á www.eldurihun.is .

/Fréttatilynning

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir