G-vítamín á þorra

Á fyrsta degi þorra, sl. föstudag, fór í loftið Geðræktardagatal Geðhjálpar þar sem hægt er að fá G-vítamín á þorranum sem hjálpar til að rækta og vernda geðheilsu okkar. Allur ágóði rennur í Styrktarsjóð geðheilbrigðis (www.gedsjodur.is) en jafnframt er dagatalið happdrættismiði og glæsilegir vinningar í boði.

„Við þurfum öll að rækta og vernda geðheilsu okkar. Geðrækt allt lífið, bætir, hressir og kætir. Geðhjálp býður því 30 skammta af G-vítamíni á þorranum; lítil og létt ráð sem er ætlað að bæta geðheilsu. Dagatal með þessum 30 skömmtum er hægt að kaupa HÉRÍ hverjum glugga dagatalsins er einn skammtur og daglega birtast góð ráð á gvitamin.is, Facebook, Instagram og TikTok. Fylgist endilega með þar,“ segir í tilkynningu Geðhjálpar.

Einnig er hægt að skrá sig HÉR og fá daglega ráðlagðan G-vítamín skammt í tölvupósti þátttakendum að kostnaðarlausu.

Dregið verður úr seldum dagatölum föstudaginn 18. febrúar 2022 en hægt er að kaupa dagatalið til 3. febrúar og kostar það 2.500 kr. Hægt er að kaupa dagatal HÉR

 „Fjöldi mergjaðra geðræktandi vinninga verða dregnir út handa heppnum þátttakendum. Það eina sem þú þarft að gera er að taka þátt og nýta þér G-vítamínið, sem virkar vel og er án aukaverkana.“

Nánar HÉR

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir