Gísli Árna og Árni Stef í Föstudagsþættinum - Myndband

Gísli Árna og Árni Stef í sófanum hjá Maríu Björk og Karli Eskil. Mynd: Skjáskot.
Gísli Árna og Árni Stef í sófanum hjá Maríu Björk og Karli Eskil. Mynd: Skjáskot.

Í Föstudagsþættinum á N4 mættu þeir eðaldrengir Gísli Árnason, formaður Karlakórsins Heimis í Skagafirði, og Árni Stefánsson, forsprakki Skokkhóps Sauðárkróks, og ræddu við þau Maríu Björk Ingvadóttur og Karl Eskil Pálsson. Tilefnið er sitthvor viðburðurinn hjá þeim Gísla og Árna.

Karlakórinn Heimir heldur áramótatónleika í Menningarhúsinu Miðgarði föstudaginn 29. desember klukkan 20:30 en Árni ætlar að hefja hið vinsæla áramótahlaup á gamlársdag klukkan 13 frá íþróttahúsi en skráning hefst klukkutíma fyrr á sama stað.

Hér fyrir neðan má nálgast Föstudagsþáttinn á N4.

Fleiri fréttir