Öllum skylt að sótthreinsa hendur áður en matur er sóttur á hlaðborðið

Frá þorrablóti Skagfirðingafélagsins í Reykjavík árið 2017. Mynd: Lúlla
Frá þorrablóti Skagfirðingafélagsins í Reykjavík árið 2017. Mynd: Lúlla

Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið breytingar á sóttvarnaráðstöfunum sem taka gildi 18. mars og byggja í meginatriðum á tillögum sóttvarnalæknis sem fela fyrst og fremst í sér auknar kröfur um skráningu gesta og smitgát í tengslum við viðburði. Þá eru einnig gerðar ríkari kröfur til sóttvarnaráðstafana þar sem boðið er upp á hlaðborð.

Á heimasíðu heilbrigðisráðuneytisins kemur fram að í minnisblaði sóttvarnalæknis til heilbrigðisráðherra væri bent á að góður árangur hafi náðst í baráttunni við COVID-19 faraldurinn hér á landi. Takmarkanir séu trúlega hvergi minni í Evrópu en hér og mikilvægt að varðveita þann góða árangur.

„Frá 19. febrúar hafa átta einstaklingar greinst innanlands og af þeim voru fjórir í sóttkví. Síðastliðna sjö daga hafa fimm greinst innanland með hið svokallaða breska afbrigði veirunnar (B.1.1.7) sem álitið er vera meira smitandi en önnur afbrigði og auk þess talið valda meiri veikindum hjá börnum. Sóttvarnalæknir telur ekki efni til að draga úr samkomutakmörkunum innanlands, heldur mælist til að þær verði áfram óbreyttar að mestu,“ segir í frétt ráðuneytisins.

Breytingar sem taka gildi 18. mars

Allir gestir skráðir: Á öllum viðburðum, svo sem í athöfnum trú- og lífsskoðunarfélaga, sviðlistar-, menningar og íþróttaviðburðum, ráðstefnum, fyrirlestrum og sambærilegum viðburðum, skulu gestir skráðir í númeruð sæti og teknar niður upplýsingar um nafn, kennitölu og símanúmer hvers og eins.

Engar veitingar í hléi: Óheimilt er að selja eða bjóða veitingar í hléi á viðburðum og skulu gestir beðnir um að halda kyrru fyrir í sætum sínum.

Engin blöndun milli sóttvarnahólfa: Skipuleggjendur viðburða skulu tryggja að ekki séu fleiri en 50 manns í hverju sóttvarnahólfi og að ekki verði blöndun gesta á milli hólfa.

Hlaðborð: Áfram verður heimilt að bjóða upp á hlaðborð en gestum gert skylt að sótthreinsa hendur áður en þeir sækja sér mat á hlaðborðið og einnig að því loknu, auk þess sem þeir þurfa að bera grímu og gæta að 2 metra nálægðarmörkum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir