Ouse með nýtt lag

Nýtt lag, Anxiety, er komið út með tónlistarmanninum Ouse, Ásgeiri Braga Ægissyni á Sauðárkróki. Skemmtilegt myndband með laginu má finna á YouTube en það er gert af Toon53 Productions og gefur fjöldi hlustenda laginu og myndbandinu góða einkunn í athugasemdakerfinu.

Eins og áður segir heitir lagið Anxiety sem útleggst sem kvíði á íslensku og er sungið um söknuð og kvíða. Þegar þessi frétt er skrifuð hafa yfir 32 þúsund horft á myndbandið á YouTube og tæp 26 þúsund á Spotify en þess má geta að fáir Íslendingar eru jafnmikið spilaðir á Spotify og Ouse.

Hér fyrir neðan má sjá myndband Ouse af nýja laginu sem greinilega gengur vel í aðdáendur Ouse.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir