Slagarasveitin með diskósmell

Það er komð sumar ... bráðum kannski.
Það er komð sumar ... bráðum kannski.

Fyrir rétt um mánuði gaf Slagarasveitin húnvetnska út nýtt lag, Einn dagur X Ein nótt, sem er hinn áheyrilegasti sumarsmellur í tilheyrandi diskóbúningi. Slagarasveitin hefur fengið söngkonu að norðan til að aðstoða sig en það er Ástrós Kristjánsdóttir sem syngur. Lagið má að sjálfsögðu finna á Spotify og sömuleiðis er hægt að hlýða á það og horfa á YouTube.

Í Facebook-síðu Slagarasveitarinnar segir að frá upphafi hafi meðlimir lagt sig fram um að gefa út lög af fjölbreyttum toga, ólíkar tegundir popp- og rokklaga, ljúfar ballöður og kántrýskotna slagara. Nú er komið að diskólagi frá hljómsveitinni. Lagið Einn dagur X Ein nótt er diskólag, þungur taktur trommu og bassa, hljóðgerflar og þessi klassíski funk/soul gítar. Þeir fengu til liðs við sig unga söngkonu að norðan, Ástrósu Kristjánsdóttur sem túlkar lagið af innlifun og gleði. Ástrós er frábær söngkona og já, hún fer á kostum.

Lagið sjálft er eftir Ragnar Karl Ingason og textinn eftir Skúla Þórðarson.

Skilaboð frá Slagarasveitinni eru: Látum okkur hlakka til því nú er diskó, dans og fjör framundan. Látum lagið Einn dagur X Ein nótt hljóma í vor og sumar!

Hlekkur á lagið á YouTube >

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir